|
|
18.04.2007 10:56:34 / Odango
Jæja, nú blogga ég á ný.
Fyrir þá sem það ekki vita en hafa engu að síður áhuga, þá
er ég fluttur úr heimahúsi foreldra minna og í mína eigin íbúð.
Gerði það reyndar í febrúar, en núna bý ég með kærustunni og
sameiginlegri vinkonu okkar, og við eigum ennþá eftir að taka upp
úr öllum kössunum. Við erum löt þegar kemur að því.
Ég sendi líka smásöguna mína, Fallnir Englar, inn á Rithringinn og
geta nú meðlimir hringsins gagnrýnt hana þar, alla vega þar til 2.
maí.
Ég er afar spenntur fyrir nýrri bók sem er að koma út frá White
Wolf. Þetta er spunaspilabókin Scion: Hero þar sem þú spilar afkvæmi
guðanna í nútímanum, svipað eins og Herkúles.
Það er ekki margt annað hægt að frétta frá mér. Dagarnir mínir
eru orðnir frekar tómlegir þar sem ég er ýmist bara að vinna eða
hangandi heima. Við sjáumst síðar, ef ekki fyrr.
»
12.12.2006 22:44:09 / Odango
Jæja, sæl á ný.
Eins og þið með góða athygli kunnið að hafa tekið eftir þá blogga
ég ekki mikið. Ástæðan fyrir því að ég blogga núna er sú að mér
leyddist. Mér hefur leyðst alveg heilmikið síðan ég útskrifaðist
17. júní síðastliðinn. Ég er þessa stundina ekki í skóla, heldur
vinn ég utanbæjar um helgar, nánar til tekið í Staðarskála í
Hrútafirði. Þess á milli kem ég heim, skipulegg næsta kafla í
spunaspilinu sem ég er að stjórna og sef. Þessa stundina hef ég
skipulagt kaflan eins vel eins og ég tel mig þurfa, þannig að núna
hef ég ekkert að gera. Það er ekkert á netinu sem vekur áhuga minn
þannig að ég ákvað að kíkja aðeins á gömlu góðu bloggsíðuna mína og
sjá hvað gengi hér á.
Ég fann tengil í gestabókinni minni að bloggsíðu gamla bekkjar
míns. Færslan í gestabókinni er frá því í júlí, þannig að ég hef
líklega misst af einhverju. En það er samt gaman að sjá hvað gömlu
bekkjarfélagar manns hafa nú fyrir stafni.
HÁMA, spunaspilafélag MA, er með mun virkari síðu heldur en þegar
ég var formaður þar. Ég er líklega virkasti meðlimur HÁMA hvað
varðar síðuna. Sunnefa, mín ástkæra kærasta, er núna formaður og
reddaði síðunni nánast frá grunni. Helvíti mögnuð manneskja verð ég
að bæta við.
Í mínum leiðindum leitaði ég að blogg síðunni minni, sem ég fann að
lokum. En áður en ég fann síðuna mína fann ég aðra síðu þar sem ég
geymi nokkrar smásögur (ein er léleg, önnur verri en ein er nokkuð
góð að mig minnir). Það er svo sem ekki frásögu færandi, nema að ég
fann á síðunni að hvaða hugmyndum ég var að vinna að fyrir sögur.
Ein hugmyndin var framhald fyrir verstu sögu síðunnar, eins var
álfasaga um agnarlitla álfa sem tóku upp á því að ferðast, og sú
síðasta var fantasía um stríð, hið góða og illa harðstjóra. Þegar
ég las yfir síðustu hugmyndina fór mig að langa að vinna meira með
þá hugmynd, þó svo að ég muni ekkert um hvað hún var. Ég veit ennþá
ekkert hvernig sagan mun verða, en ég stefni á eitthvað
almennilegt. Sem stendur mun verkefnið hafa nafnið "Hetjur munu
deyja" og ég reikna með að gera framhald sem hefur verkefnaheitið
"Goðsagnir ávallt lifa". Satt best að segja veit ég ekki hvort ég
muni skrifa þetta í alvöru, en þessa stundina er það skemmtileg
hugdetta.
Þökk sé spilinu sem ég er núna að stjórna hef ég fengið nokkrar
góðar hugmyndir að smásögum, aðallega tengdum hrollvekju. Ég mun
ekki segja frá neinum hugmyndum hér núna vegna þess að sumar
hugmyndirnar tengjast spilinu á einhvern hátt og ég vil ekki að
spilararnir villast inn á þessa síðu og komast að einhverju sem ég
vil ekki. Ég er þó að spá í að skrifa smásögur um eina
aukapersónuna í spilinu sem spilararnir hittu í síðustu viku,
vampíruna Lukas. Ástæðan er sú að Lukas er stór karakter með langa
sögu (hugmyndin var sú að hann hefði verið krossfari).
Ég hef einnig fengið hugmynd að nokkuð löngu spili fyrir Vampire
the Requiem (spilið sem hópurinn minn spilar) sem myndi byrja í
Rómaveldinu, ná yfir nokkur helstu viðburði Evrópusögunnar og enda
í nútímanum. Það yrði rosalegt, og svakalega langdregið.
En já, ég ætlaði mér ekki að hafa þetta svona langt. Gerist líklega
þegar það sem ég vil segja byrgist upp. Annars þá vil ég bara enda
þetta, óska öllum velferðar þar til ég blogga á ný (og jafnvel
lengur), og ég kveð að sinni.
»
22.05.2006 17:14:56 / Odango
Halló aftur.
Er bara rétt að blogga til að láta vita af mér. Það styttist
í prófatíð hjá mér. Við í MA erum pínu sein í því. Svo
er hellingur á seiði núna, fer samt ekkert nánar í það.
Skrifaði nýja smásögu í dag. Var í tjáningu og fékk
tilhneygingu til að skrifa eitthvað í samhengi. Þetta er
reyndar svolítið rugl. Var að drekka Magic (var á tilboði í
sjoppunni í dag) og fékk þannig hugmyndina. Sagan er sem sé
um gaur sem ákveður allt í einu, alveg upp úr þurru, að drekka 100
dósir af orkudrykk. Það er þáttur í Futurama sem inniheldur
svipaðan söguþráð, þ.e.a.s. þegar Fry ákveður að drekka 100 bolla
af kaffi, þannig að það hafði einhver áhrif á söguna.
Alla vega, skemmtið ykkur við að lesa hana, minnz er farinn.
»
28.03.2006 23:16:39 / Odango
Fyrir einhverju síðan var ég klukkaður (í október á síðasta ári til
að vera nákvæmari) sem þýðir víst að ég eigi að segja nokkur vel
valin orð um sjálfan mig.
- Ég hef verið kallaður ýmsum nöfnum, þar á meðal Skari, Örn,
Símon, Ari, Skari búgí, Dolli, en þó líkar mér best við að vera
kallaður mínu rétta nafni, Óskar.
- Þó margir vilji deila um það þá er ég Akureyringur. Hér
fæddist ég og hér hef ég búið megnið af ævi minni.
- Þó margir vilji deila um það þá er ég karlkyns. Ég neita
allri þeirri sök að hafa farið í kynskiptiaðgerð snemma á
lífsleiðinni.
- Ég er óbærilega vanvirkur bloggari (bloggaði síðast í
september). Ég fékk bara þörfina til að blogga aftur en þið
getið andað rólega, þörfin endist ekki lengi.
- Ég er nörd, þó ótal kannanir hafa sýnt fram á
annað.
Tölvan mín er í rugli þessa stundina. Ég er að brúka tölvuna
hans pabba þessa stundina og býð bara eftir því að fá tölvuna mína
aftur. Eins og ég sagði þá er tölvan mín í rugli og
fjölskylduvinur á að vera að sjá um hana. Hann hefur aftur á
móti hvorki sínt sig né látið í sér heyra síðustu vikuna.
Hann er talinn vera á launum hjá fyrirtækinu sem sér um viðgerðir á
tölvunni til að halda tölvunni frá verkstæðinu þar til ábyrgðin
rennur út í byrjun ágústs.
Ég er að vinna að skemmtilegu rannsóknarverkefni í uppeldisfræði
þar sem ég er að geri könnun á viðhorfum unglinga í skólum til
nörda. Þetta er reyndar hópverkefni en ég hef ávallt litið á
sjálfan mig sem eins manns hóp, jafnmikið og það hljómar eins og
geðklofi. Ég hef komist að ýmsu varðandi nörd í þessum
rannsóknum mínum, eins og að nörd er án gríns skilgreynt í
orðabók. Í þessari sömu orðabók komst ég að því að orðið lúði
á við um illa klæddan einstakling.
Ég held ég segi þetta gott í bili. Ef harði diskurinn í
tölvunni minni bjargast þá mun hér vonandi birtast ný smásaga á
næstunni (ef ég fæ þá tölvuna mína aftur). Ég fann hana einn
daginn í My Documents möppunni minni og virðist hafa gleymt að
setja hana á bloggið. Við verðum bara að bíða og sjá til.
P.S.: Fyrir ykkur forvitnu þá var orðið nörd skilgreynt í
orðabókinni sem ákafur áhugamaður eða kjáni/flón. Ég hallast
sjálfur að fyrri skilgreyningunni.
P.P.S.: Geðklofi (schizophrenia) er ekki það sama og MPD
(Multiple Personality Disorder). Geðklofi er meira eins og
ofskynjanir (halda að hundur nágranna þíns sé Satan að segja þér að
myrða íkorna) á meðan MPD er eins og að fleiri en einn persónuleiki
búi í sama líkamanum og hver "vaknar" við ákveðnar aðstæður (til er
afar furðulegt dæmi þar sem allt að 9 persónuleikar voru í einni
konu, þar af einn persónuleiki karlmanns).
»
03.09.2005 10:54:53 / Odango
Ja, tetta er bara stutt kvedja hedan fra Tyrklandi. Tad er helviti
heitt og lyklabordid er med stofum sem eg vissi ekki ad vaeru til.
Til daemis ÇĞŞ. Her er alltof heitt. Og ta meina eg heitt. Eg vil
helst fara ur bolnum en hafdi ekki nog af solarvorn til ad bera a
mig allan. Jaeja, nu er tessi kvedja ad verda nog. Vıd sjaumst
sidar, ef ekki fyrr (eins og vanalega)
»
30.08.2005 16:29:24 / Odango
Vá, jæja, ég er að fara til útlanda í fyrsta skiptið á morgun, og
það til Marmaris í Tyrklandi. Fyrir þá sem það ekki vita þá er minn
árgangur í MA að fara í útskriftarferð til Tyrklands á morgun og
verðum þar í tvær vikur. Heilar tvær vikur þar sem við getur
drukkið og sungið og flippað án mikilla vandræða. Að vísu bara í
hófi. Sjálfur reikna ég ekki með að drekka voðalega mikið þar sem
ég hef ekki gert það í tvö ár, bara nokkra sopa við sérstök
tilefni. Ég hef sem sagt ekki fundið almennilega á mér í tvö heil
ár. Kannski maður breyti því en ég vil frekar muna eftir ferðinni
heldur en annars.
Áætlunin hljómar þannig að við fljúgum beint frá Akureyri til
Tyrklands og keyrum þaðan sem við lendum til Marmaris í einhverjar
mínútur. Man ekki áætlunina alveg en þannig hljómar hún í grófum
dráttum. Ég á eftir að fá launin mín fyrir þennan mánuð en ég
reikna með að minnst 50% af því fari í ferðareikninginn minn. Gaman
af því.
Ég á örugglega eftir að sakna einhvers hér. Ég á eftir að sakna
Sunnefu, það veit ég og engin spurning um það, en á ég eftir að
sakna einhvers annars í tvær vikur? Það er ekki eins og ég geti
ekki fundið mér eitthvað að gera í tvær vikur þannig að ég gleymi
alveg stað og stund og sakni hreinlega einskis (nema Sunnefu
auðvitað, henni gleymi ég aldrei) þannig að ég held að svarið við
því hvort ég eigi eftir að sakna einhvers sé einfaldlega nei.
Ég læt ykkur vita hvernig ferðin gekk þegar ég kem aftur en meira
hef ég ekki að segja að sinni.
Ég var á flippinu síðustu 2-3 dagana í vinnunni minni. Bæði var það
vegna þess að ég var við það að fara að hætta og svo líka út af
fyrrnefndri ferð til Tyrklands. Ég hreinlega dansaði í sjoppunni
(og gerði það illa). Þetta voru líklega skemmtilegustu dagarnir í
vinnunni og það sást að mér fannst það. Ef einhver af mínum fyrri
vinnufélögum eru að lesa þetta þá þakka ég kærlega fyrir sumarið.
Það var æðislegt að vinna með ykkur.
Þeir sem hafa lítinn eða engan áhuga á hinu mikla afli nördismans
þurfa ekki að lesa þessa málsgrein. Ég er byrjaður að spila forum
based roleplay á netinu sem byggist á Naruto manganu/animeinu. Það
er nokkuð gaman, þó ég sé raunverulega ekki byrjaður á að spila
heldur er ég að undirbúa karakterinn minn og hef að undanförnu
verið að vinna að klaninu sem hann tilheyrir. Ég gerði bloodline
limit, svipað og Sharingan og Byakugan fyrir þá sem þekkja til
Naruto, klan sverð sem kallast Iaishiken og svo fullt af jutsus
(ekkert fleira en þurfti að gera en mér fannst það samt slatti).
Það er gaman að búa svona til en ég get samt ekki beðið eftir að
byrja að spila, þó það verði líkast til ekki fyrr en eftir rúmlega
2 vikur.
Jæja, ég held að ég segi þetta bara gott í dag, og næstu tvær
vikur. Við sjáumst síðar, ef ekki fyrr. Og munið, krakkar mínir:
Life is beautiful, so smile for the sake of sanity!
Dagar til Tyrklandsferðar: 1
»
24.08.2005 19:23:42 / Odango
Jæja, ætla að blogga aðeins núna. Ég er með fleiri upplýsingar um
Exalted spilið sem ég ætla að stjórna í vetur. Ævintýrið hefst í bæ
í Scavanger Lands (ekki beint útnári andskotans en meira kannski
sem borgríki) sem venjulega er stjórnað af drottningu frá höllinni.
En þar sem drottningin er á ferð til Realm (ríki á Blessed Isle sem
stjórnað er af Dragon-Blooded) hefur sonur hennar tekið við stjórn
á meðan. Ár er liðið og bærinn hefur farið úr öskunni í eldinn.
Prinsinn hefur sett óhugsandi lög og það vald sem drottningin hafði
yfir mönnum sínum hefur verið vanvirt. Hetjurnar eiga leið í gegn
og dragast inn í þessa atburðarás þar sem þær verða að velja lið.
Munu þær ganga til liðs við prinsinn til að hjálpa honum að ná þeim
völdum sem móðir hans hafði áður en hún lagði af stað, eða munu þær
aðstoða uppreisnaliðið sem hefur verið að myndast síðustu mánuði? Í
borginni eru einnig leyndarmál sem munu gera hetjunum erfiðara
fyrir, hver svo sem ákvörðun þeirra verður.
Ef við lítum á þetta sem sagnabálk þá er þetta inngangssagan, eða
útdráttur að henni. Þarna hefst bálkurinn en, vonandi, langt frá
því að enda. Jafnvel eftir uppreisnina munu hetjurnar lenda í
vandræðum sem tengjast borginni á einn eða annan hátt.
Fyrir þá spilara sem gætu haft áhuga á þessu ævintýri þá ætla ég að
bæta við nokkrum hugmyndum um hvernig karaktera er gott að hafa
með. Það er auðveldlega hægt að blanda einhverjum af þessum
hugmyndum saman en spilararnig skulu tala sín á milli hvernig gott
væri að sameina þessar hugmyndir á milli karaktera. Það er alls
ekki bannað að gera diplómat sem er helvíti góður bardagamaður.
Gott væri að hafa leiðtoga,
einhvern sem getur tekið við stjórn þegar allt fer á hinn versta
veg.
Einhver sem kann siglingafræði væri góður, þó
ekki nauðsynlegur frekar en annað. Bara einhver sem kann að sigla
eða með grunnþekkingu eins og sjóliðsmaður í sjóher,
fiskimaður, eða
sjóræningi (Sparrow
anyone?).
Diplómat. Einhver sem getur
samið við andstæðinga eða hlutlausa í sína þágu þegar aðrir eru
fjarri eða ekki til. Eclipse Solars eru til dæmis mjög góðir
diplómatar þar sem þeir hafa friðhelgi hjá öndum, djöflum og
jafnvel guðum.
Bogamaður er nánast
nauðsynlegur þegar þarf að gera árásir úr fjarlægð.
Njósnari, þjófur eða
launmorðingi eru líka helvíti þægilegir stundum. Gætu fundið
upplýsingar og losnað við pólitíska andstæðinga.
Læknir er líklega sá
nauðsynlegasti þegar einhver er við dauðans dyr.
Handverksmaður
eða smiður af
einhverri gerð væri þægilegur ef eitthvað brotnar eða skemmist
(brynjur, vopn, stóllinn sem þú sast á).
Bardagamann
þarf ekki að nefna þar sem Exalted hreinlega býður upp
á það að barist verði sem oftast.
Galdrakall
gæti komið að góðum notum einnig.
Fjölbreyttni er galdurinn.
Ég set síðar inn tengil þar sem ég útskýri ýmislegt um Exalted,
eins og Caste,
Charm, Combo, Stunt Bonus og þess háttar.
Einnig verður eitthvað um kerfið sjálft (þó ekki saga þess)
og síðar gangur mála í spilinu þegar við spilum.
Annars er ekki annað sem ég vildi nefna, nema það er vika í það að
ég fari til Tyrklands og ég er fyrst núna farinn að verða mjög
spenntur. Við sjáumst síðar, ef ekki fyrr.
Dagar til Tyrklandsferðar: 7
»
11.08.2005 01:51:29 / Odango
Jæja, það er komið að því. Ég er aftur bloggandi, en þar sem
klukkan er margt og ég þarf að mæta snemma í vinnu í
fyrramálið.
Það styttist í að ég fari í útskriftaferð til Marmaris í Tyrklandi
og mun það vera í fyrsta skiptið sem ég fer eitthvert frá landi
(tel ekki með Heimaey). Ég er nokkuð viss um að eitthvað eigi eftir
að gerast þannig að ég kemst ekki út. Það er bara eitthvað svo
ótrúlegt að vera loksins að fara út. Komst líka að því að það má
vera svart/hvít mynd í vegabréfi, sem er nokkuð gott finnst mér. Ég
hef líka ákveðið að kaupa afmælisgjöf handa pabba í Marmaris þar
sem ég fer út á afmælisdaginn hans.
Ég hef ákveðið að endurvekja félag sem ég stofnaði fyrir 2 árum,
AniMA eða Anime í MA. Þar hittumst við og horfum á japanskar
teiknimyndir, og sýnum vonandi eitthvað í Kvosinni. Jolly!!
Ég hef einnig ákveðið að stjórna spunaspili sem heitir Exalted í
vetur. Ennþá hefur enginn spilari sem ég hef einhvern áhuga á að
stjórna boðið sig fram í að spila þetta spil, þannig að áhugasamir
eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband. Til eru nokkrar leiðir
til þess: þeir sem þekkja mig að einhverju ráði geta sent mér
e-mail; hægt er að hafa samband við mig í gegnum gestabókina eða
með því að skrifa álit á þessari færslu; hægt er að koma upp að mér
í skólanum og segja "yo, biatch! I\'s wanna play some fuckin\'
roleplay!" Athugið það að þetta síðasta má umorða og hvet ég
sérstaklega til þess. Ég stefni að því að spilað verði af alvöru,
ekki að karakterarnir verði einhverjir rumar á sýru með vopn sem
enginn heilvita maður myndi láta þá hafa til að byrja með.
Karakterarnir verða því að vera vandaðir, og \'concept over
statistic\'. Það eru allt of margir karakterar (þar á meðal ýmsir
NPC sem ég hef gert, því miður) sem eru byggðir á stötum fyrst og
fremst en það er einmitt það sem ég vil að spilararnir forðist að
gera. Spilið verður samt alls ekki drama dauðans, né verður það
algjör sýra, heldur frekar kannski svona \'happy medium\'. Húmor er
of oft vanmetinn eða ofmetinn í roleplay. Fyrir ykkur sem ekki
vitið hvað Exalted er, en hafið grunnskilning á roleplay, þá ætla
ég að reyna að koma því í verk að útskýra betur grunnhugmyndina
einhvern tímann og þá í leiðinni eitthvað af sögunni sem ég ætla að
vinna með í vetur (ef ég verð búinn að setja hana eitthvað
almennilega saman). Ætla bara að benda ykkur á að ég ætla að vera
mjög vandlátur á það hverja ég ætla að stjórna því ég vil síður
stjórna einhverjum hyper-active gaurum sem vilja bara drepa, drepa,
drepa, DREPA!
Skemmtileg vinna hjá mér. Gaman, gaman. Níu dagar í röð áður en ég
kemst heim og get sótt vegabréfið mitt. Það verður reyndar líka
síðasta fríið áður en ég hætti í vinnunni og fer út þannig að ég
verð líkast til að pakka helmingnum niður og restinni þegar ég
hætti.
Þetta er líkast til orðið nóg í kvöld/nótt. Ég ætla í háttinn þar
sem ég sef hreinlega ekki nægilega mikið hérna (mín eigin sök þó,
verð að gera eitthvað í því). Því býð ég ykkur góða nótt og megið
þið lifa löngu og hamingjusömu lífi þar til því líkur, sem verður
vonandi langt þangað til. Eins og ég sjálfur orðaði það, "við
sjáumst síðar, ef ekki fyrr". Góða nótt.
»
03.07.2005 17:58:12 / Odango
Jæja, þá tekur maður sig loksins til og fer að blogga
eitthvað. Ég er mest búinn að vera að vinna hér í Staðarskála
og var að fá aðgang að netinu hérna í herbergið mitt. Joy!
Hér er bara nokkuð fínt að vera, fínir krakkar sem maður vinnur með
og fínn matur í þokkabót. Ég er, sem stendur, að vinna í
minni lengstu vaktatörn síðan ég man eftir mér. Eflaust hafa
fleiri unnið lengri törnir en ég en mér þykir þetta þó
magnað. Þetta eru níu daga törn, svo fæ ég fjógurra daga frí
og svo átta daga vinna.
Dagurinn í dag var þokkalegur. Aldrei verið jafnmikið að gera
hjá mér í vinnunni. Fullt af liði á leið frá móti sem var að
enda í dag eða gær. En ég naut þess ;-)
Ég fór í útileigu um síðustu helgi og spilaði LotR RPG. Það
var hörkustuð og við vorum að fara að fjölga föruneytinu um 5
manns. Einn maður (ég), einn dvergur (Gunna), tveir hobbitar
(Þóra og Sunnefa, ástin mín ;-) ) og svo einn álfur sem Rut
(stjórnandinn) bætti inn í svo að föruneytið væri ekki 13
manns. Einstaklega áhugavert fannst mér.
Ég segi ykkur vonandi frá þessu betur seinna en ég ætla að segja
þetta gott í dag. Við sjáumst síðar ef ekki fyrr ;-)
»
09.06.2005 09:34:04 / Odango
Jæja, þá er ég búinn að skrifa nýja smásögu og setja hana á bloggið
mitt. Þessi smásaga fjallar um einræðisherra í ævintýraheimi
og er heldur stutt. Ég fékk hugmyndina þegar ég las 152
reglur hvernig maður á að vera illur harðstjóri á blogginu hennar
Þóru. Þetta er flottur listi. Þið sem lesið
smásöguna mína megið endilega segja mér hvað ykkur finnst.
Fleira var það ekki. Ég þarf að taka tvö endurtökupróf á
morgun og á mánudaginn en ég læt ykkur vita hvernig það gekk þegar
ég er búinn. Við sjáumst síðar, ef ekki fyrr.
»
30.05.2005 18:22:59 / Odango
Jæja, þá er sá dagur runninn upp. Í dag er heilt ár síðan við
Sunnefa byrjuðum saman. Ég get nú sagt að það var síður en svo
auðvelt að byggja upp sjálfstraust til að byrja með henni, það vita
margir sem okkur þekktu þá og þekkja enn, en allt fór þó á besta
veg. Dagsetningin er þó heldur óheppileg þar sem nú er prófavika og
hreint ekki auðvelt að halda upp á daginn, en við gáfum þó hvoru
öðru gjafir. Bæði fengum við svona hjartalaga hálsmen frá hvoru
öðru. Það sem ég gaf var frekar lítið og nett en það sem ég fékk
var nokkuð stærra, silfrað og hægt að opna. Mjög fínt finnst mér og
Sunnefu fannst sitt bara nokkuð fínt. Happy, happy, joy, joy
;-)
So vra Suneffa ða lgaa stfasentignuna hja mré vso gé áhvað ða
srkiva þesa sedninku mðe otsl vilum ;_) (þýðing: Svo var Sunnefa að
laga stafsetninguna hjá mér svo ég ákvað að skrifa þessa setningu
með ótal villum ;-) ).
Ég veit ekki hvað ég á að segja fleira. Við Sunnefa eigum líklega
eftir að gera eitthvað fleira skemmtilegt en ég veit ekki hvað
ennþá svo ég læt ykkur bara vita síðar ef það var eitthvað
áhugavert og frásagnahæft. Sjáumst síðar, ef ekki fyrr ;-)
»
22.05.2005 14:54:05 / Odango
Jæja, þá er ég búinn að setja inn aðra smásögu. Þessi heitir
Fallnir englar og fjallar hún um Loga Sigmar, meðlim í Reykjarvíkur
genginu Englar Himnanna. Sagan er síðan sögð frá sjónarhóli
Baldurs félaga hans. Sagan er í raun endursögn frá því þegar
erkiengillinn Lúsífer var hrakinn frá Himnaríki og á Logi Sigmar að
tákna Lúsífer, Englar Himnanna að tákna englanna og Reykjavík á að
tákna Himnaríki. Samt er ekkert líkt með Reykjavík og
Himnaríki í sögunni, þetta er bara táknmynd eða eitthvað. Svo
eru auðvitað fleiri tákn í sögunni en ég ætla ekki að benda á þau
hér.
Endilega lesið söguna og segið mér hvað ykkur finnst.
Annars er fátt í fréttum. Ég horfði á Eurovision í gær og mér
fannst þetta nú nokkuð ágætt. Ég var alveg sáttur við
útkomuna verð ég að segja, en ég hefði verið sáttari ef Ísland
hefði komist áfram úr forkeppninni. Annars veit ég ekkert
hvernig stigin fóru í þeirri keppni. Ef einhver veit hve mörg
stig við fengum úr forkeppninni má hann alveg láta mig vita hvernig
það fór.
Við sjáumst síðar ef ekki fyrr. Ég ætla bara að slútta þessu
núna. Vi ses!
»
19.05.2005 18:35:02 / Odango
Jæja, það hlaut að koma að því að ég bloggaði eitthvað hérna. Hvað
er nú sniðugt að segja frá? Það er þrennt að frétta frá mér. Systir
mín var að láta ferma sig á Hvítasunnunni, ég prófaði nýtt
spunaspil og svo er stutt þar til við Sunnefa eigum árs afmæli
saman.
Við skulum byrja á spunaspilinu. Það að ég prófaði þetta spunaspil
er svo sem ekki frásögufærandi nema það að ég samdi það, hannaði
kerfið og átti hugmyndina. Þetta var eins konar alpha-test og við
skrifuðum niður nokkra punkta um breytingar og hugmyndir. Það var
stuð. Baldvin, Styrmir bróðir hans og Þóra gerðust tilraunadýr.
Styrmir tók upp á því að drepa son mafíuforingjans með sigð og þeir
Baldvin flúðu úr bænum á meðan Þóra lét sem ekkert hefði í skorist
(karakterinn hennar drap samt einn fylgdarliða mafíustráksins með
góðu höggi á andlitið sem leiddi til þess hann datt og rak hníf í
hálsinn á sér). Síðan er spurning hvernig þetta allt fer.
Systir mín fermdist um síðustu helgi og er afar sátt held ég. Hún
fékk auðvitað þó nokkrar gjafir og fékk gesti. Margir gestirnir
spurðu mig hvar Sunnefa væri en hún var í annari fermingarveislu á
Húsavík.
Alla vega. Nú held ég að sé komið nóg í bili. Við sjáumst síðar, ef
ekki fyrr (eins og venjulega).
»
14.04.2005 14:40:40 / Odango
Jæja, ég tók upp á því að bæta ljóðum inn á bloggið mitt, tekið
nánast beint af gamla blogginu mínu. Hægt er að finna ljóðin
í bókasafninu mínu á þessu bloggi. Þetta eru alls ekki öll
ljóðin sem birtust á blogginu mínu, en ég hef grun um að þetta sé
megnið.
Annars er ekki mikið sem hægt er að segja hér og nú, þannig að ég
segi þetta bara gott í bili, en skoðið endilega eitthvað af
ljóðunum mínum og verið gagnrýnin.
Sjáumst síðar, ef ekki fyrr.
»
03.04.2005 12:13:41 / Odango
Já, þá er kominn sunnudagur. Í gær var laugardagur, á morgun
er mánudagur og svo framvegis, og svo framvegis.
Í gær tókum við Sunnefa upp á því að hitta nokkra vini og spila
spunaspil, Vampire: the Requiem. Í því spili spilum við
vampírum. Það sem er áhugavert samt finnst mér að í síðustu
viku spiluðum við manneskjurnar áður en þær urðu vampírur.
Það var stuð, en karakterinn minn var reyndar drepinn eftir að hafa
móðgað vampírurnar all verulega. Ég er aðalega hissa að 'ég'
var ekki drepinn fyrr. Ég þurfti þess vegna að búa mér til
nýjan karakter, sem akkúrat tvöfalt eldri en fyrri karakterinn, eða
38 ára. Einkaspæjari og fínasti ökumaður. 'Við' erum um
þessar mundir í æfingum að læra um hætti vampíranna og erum stödd í
París. Það sem er skemmtilegast við spunaspil er líklega að
geta farið út um allan heim án þess þó að stíga upp úr stólnum
sínum.
Alla vega, þá var þetta nokkuð gaman, en við áttum svolítið erfitt
með einbeitinguna og ég átti erfitt með að skipta mér ekki af því
hvernig var stjórnað. En það gerist þegar maður stjórnar
oftar en maður spilar.
Ég veit eiginlega ekki hvað segja skal meira, þannig að ætli maður
segi þetta ekki bara gott? Við sjáumst seinna, hress og
kát.
»
Síður: 1 2
|
Dagatal
| febrúar - 2012 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | 1 | 2 | 3 | 4 | | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | | 26 | 27 | 28 | 29 | | Fyrri | Næsti |
Dagsetning
10. febrúar 2012
|